Fyrirkomulag póstkosningar
21.2.2009 | 12:31
Á aukakjördæmisþingi framsóknarmanna í Suðurkjördæmi sem haldið var í 14. febrúar í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli var samþykkt tillaga þess efnis að val í sex efstu sætin á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu vegna kosninga til Alþingis þann 25. apríl nk. skyldi fara fram með póstkostningu allra félagsmanna í kjördæminu.
Frestur til að tilkynna framboð rann út á hádegi í gær. Ennfremur var lokað fyrir nýskráningar í flokkinn í gær.
Munu atkvæðaseðlar að öllum líkindum vera sendir út til félagsmanna eftir helgi og verður hægt að póstleggja atkvæði sitt til og með 4. mars næstkomandi. Úrslit verða svo kynnt á kjördæmisþingi sem haldið verður á Selfossi, helgina 7-8. mars.
Athugasemdir
Nú er bara að allir taki þátt og skili atkvæðum sínum í tæka tíð þarna er farin leið lýðræðisins allir sem skráðir eru í flokkinn fá sendan seðil.
Jón Ólafur Vilhjálmsson, 21.2.2009 kl. 22:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.