Man einhver . . .
3.12.2010 | 10:28
Er ekki rétt að rifja upp kór fjármálaráðherra Steingríms J og fylgisveina hans í VG og Samfylkingarinnar allrar þess efnis að allt væri stopp á Íslandi vegna Icesave - þess vegna ætti að samþykkja sakamanna-samning Svavars og Indriða.
Fyrirtæki áttu ekki að geta endurfjármagnað sig erlendis. Marel, Iclandic Group, Landsvirkjun osfr gátu það öll og í tilviki Marels allaveganna fleiri um boðið og kjör mjög ásættanleg.
Skuldtryggingarálag Íslands átti að fara í hæstu hæðir - staðreyndin er að það hefur lækkað æ síðan þjóðin hafnaði skuldaklafa samningi VG og Samfylkingar.
Sigmundur Davíð formaður Framsóknar fór algjörlega með rétt mál og stóð fremstur á þingi í að berjast fyrir réttum málstað. Málstað þjóðarinnar og þar með fyrirtækjanna líka.
Icesave hefur ekki áhrif á erlenda fjármögnun fyrirtækja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.