Afleiðingar öfgaskattheimtu
28.6.2012 | 13:17
Því miður hlustaði ríkisstjórnin ekki á aðvaranir stjórnarandstöðu og allra umsagnaraðila um frumvarp um veiðigjöld - óháðra sérfræðinga, sveitarfélaga um land allt, fyrirtækja í sjávarútvegi, launþegasamtaka né atvinnurekanda.
Því miður var ekki gefinn tími til að fara ofan í kjölinn á "gölnu frumvarpi," "afleitri aðferðafræði" og reikna út afleiðingar á einstök fyrirtæki og útgerðarflokka þrátt fyrir beiðnir stjórnarandstöðu þar um.
Því miður er við völd ríkisstjórn sem lætur pólitískan "rétttrúnað" sinn og öfgar ráða för í stað skynsemi og yfirvegun.
Það kemur því ekki á óvart að afleiðingarnar komi strax fram hjá fyrirtæjum sem eru að reyna að standa í skilum við bankakerfið - við ríkið (sem tekur stóraukna hlutdeild) - við starfsfólk sitt - ekki er hægt að greiða öllum allt því þá fer fyrirtækið á hausinn og allir tapa - starfsfólkið - byggðarlagið - ríkið - bankarnir - við þjóðinn.
Því miður kemur þetta ekki á óvart en ábyrgðin er ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms - Samfylkingar og VG - þau geta ekki látið eins og ekkert sé - þau voru vöruð við. - en hlustuðu ekki - því miður.
Vinnslustöðin segir upp 41 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég held að þetta sé bara byrjunin,því miður.
Marteinn Sigurþór Arilíusson, 28.6.2012 kl. 14:18
Sigurður Ingi. Getur verið að ESB sé að ýta á takkana, eins og gerðist á Dalvík?
Það er nauðsynlegt að viðra allar hliðar málsins í víðu samhengi stóru myndarinnar. Það er kominn tími til að allir tali hreint út um þessi mál, svo hægt verði að bjarga því sem bjargað verður frá ESB-klóm Brunssel-valdsins falda.
Þessi pólitíski feluleikur kemur öllum á vonarvöl á endanum.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.6.2012 kl. 23:32
Þetta eru ekki afleiðingar hækkunar veiðigjalds þó svo að þetta sé sett þannig upp. Rekstur skipsins hefur ekki gengið sem skyldi. Í tvígang hrundi aðalvél skipsins sem leyddi til þess að skipta þurfti um vélina með tilheyrandi kostnaði. Þetta hefur því verið fyrirliggjandi um nokkurn tíma.
Ef útgerðin hefði einhvern áhuga á að gera skipið út þá hefði hún getað lækkað eða hætt arðgreiðslum um tíma, en það dettur þeim ekki í hug að gera.
Guðmundur (IP-tala skráð) 29.6.2012 kl. 08:36
http://www.dv.is/frettir/2012/6/29/gudmundur-um-uppsagnir-hja-vinnslustodinni-thetta-er-syndarmennska/
AUGLJÓST FRÁ BYRJUN.
Hvar er gagnrýna hugusnin?
Sleggjan og Hvellurinn, 29.6.2012 kl. 17:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.