Atvinnustefna ríkisstjórnarinnar?

 Leitað hefur verið lengi að atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Hún er nú fundin - þar fer forsætisráðherra  Samfylkingar fremst en ráðherrar VG skammt að baki.

"Eitthvað annað" stefnan er þá - opinberar nefndir!!  Hagvöxtur - aukin framleiðni landsins - það bíður seinni tíma - og annarrar ríkisstjórnar. Það er ekki á verkefna-samstarfsskrá ríkisstjórnar VG og Samfylkingar.

Það er verulegt áhyggju efni að hagvaxtarspáin hefur lækkað um 35% frá í vor  - eða úr 3.2% niður í 2%.

´Sérkennilegast er þó að spáin byggist aðallega á aukinni einkaneyslu. Það er lántökum heimila og aukinni neyslu þeirra . . . . .  vorum við ekki búin að prófa það . . . . .  það gekk ekki.

 Valkosturinn sem ríkisstjórnin vill ekki en ýmsir hafa bent á (Framsóknarmenn, Lilja Mósesdóttir ofl) er að leiðrétta skuldir heimila, minni niðurskurð m.a. á heilbrigðisstofnunum - og síðan síðast en alls ekki síst að gera allt til að koma atvinnulífinu í gang með arðbærum verkefnum sem skila raunverulegum auknum tekjum til þjóðarbúsins bæði sem útflutningstekjum og sköttum.


mbl.is Hafa skipað 150 nefndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Heimilin munu ekki taka lán - ÞAU GETA ÞAÐ EKKI - einkaneyslan er og verður fólgin í ítrustu nauðsynjum - það fer allt í svarthol SJS sem gleypir allt sem heitir laun - ef viðkomandi hefur vinnu -

Ég ætlaði að segja frá kunningja mínum sem er bundinn við hjólastól og er með útbúnað til þess að komast í ökumannssæti bifreiðar sinnar - hann á enn fyrir bensíni - stundum - þannig að hann getur farið og verslað - t.d. mat -

En ég hætti við að segja frá honum - SJS og skattriði gætu hugsað upp nýjar álögur t.d. hjólastólainnkaupaferðaskatt.

Læt þetta liggja.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 26.11.2010 kl. 09:56

2 identicon

Hverjir komu okkur í þessa aðstæður ? B, G og R

forvitinn (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband