Hræðsluáróðurinn virkar ekki

Um daginn velti ég því fyrir mér að umhugsunarvert væri hverjir væru að selja Icesave-samninginn fyrir stjórnvöld.  Bankarnir - sem eru að stærstu leiti í eigu erlendra kröfuhafa (sem enginn fær að vita hverjir eru?!?!) og samninganefndin sjálf. Því til viðbótar nokkrir - "usual suspects" úr liði háskólakennara sem vildu Icesave I og II og nú III. 

T.d. bauð Arion-banki upp á mjög villandi kynningu frá annars vegar manni úr samninganefndinni og hins vegar manni sem kynntur var sem fjármálasérfræðingur en hefur verið lengi í vinnu fyrir fjármálaráðuneytið og vann að gerð Icesave-samninganna.

Afkoma bankanna og himin há laun bankastjóra setja síðan "kynninguna" í sérstakt ljós.

 

Bankarnir hugsa um að hámarka ávinning sinn í skjóli ríkisábyrgðar og háskólamennirnir ætla örugglega ekki að fallast á að skorið verði niður í deildum þeirra til að standa straum af kostnaðinum. Í báðum tilvikum eiga einhverjir aðrir, almenningur, að bera kostnaðinn.

 

En almenningur á Íslandi lætur ekki hræða sig frá að velta hlutunum fyrir sér og draga sínar eigin ályktanir.

 

Það er hinsvegar dæmi um enn eitt klúðrið hjá ríkisstjórninni að fyrst nú 3 vikum fyrir kjördag og um það leiti sem utankjörstaðakosning er hafinn - að þá - JÁ ÞÁ FYRST - ætlar ríkisstjórnin að sjá sóma sinn að kynna málið fyrir þeim sem eiga að taka ákvörðun um hvort almenningur á Íslandi eigi að greiða skuldir einkabanka.

 

Í langan tíma hefur verið ljóst að þjóðinni er treystandi -forsetanum er treystandi - en ríkisstjórninni er ekki treystandi fyrir verkinu. Ekki þessu frekar en flestu öðru.


mbl.is Mjótt á mununum um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, þetta eru gleðifréttir að þeim sé að fjölga sem ætla að segja nei, og ætla þar með að sýna manndóm og mennsku frekar en skjálfa sem hræddar mýs fyrir óréttlæti glæpamanna. Enn er von í heiminum. Einn helsti frömuður lýðræðisins fyrr og síðar sagði "Þeir sem eru tilbúnir að borga fyrir öryggi með frelsi sínu, eiga hvorugt skilið, og munu missa bæði... Siðan hafa þessi fleygu orð oft verið notuð yfir stuðningsmenn nazistanna, Þjóðverjar völdu á sínum tíma Hitler afþví hann höfðaði til þarfar þeirra fyrir meint "öryggi", og það er eins með þá sem setja já við Icesave. Það er nokkurs konar nazismi að segja já við Icesave. Ekki bara ertu með því að styðja óréttlæti til að reyna að tryggja falskt öryggi, eins og kjósendur Hitlers eða þeir sem borga mafíunni "verndartolla" frekar en berjast gegn henni...og þá grasserar hún bara og verður áhrifameiri og áhrifameiri, heldur erum við með þessu að hjálpa málstað nazismans með að traðka á litaða manninum. Þjóðarskuldir hafa drepið fleiri í heiminum en styrjaldir, sjúkdómar og matarskortur samanlagt síðast liðin ár, afþví þær eru algengasta ástæða þessa þrenns. Haíti er gott dæmi. Þar var nánast jafn ömurlegt um að litast fyrir og eftir náttúruhamfarirnar í þessu áður blómlega landi, afþví nær allar tekjur landins fara í að borga Frökkum gamlar skuldir sem þeir vilja meina þeir eigi, þessir fyrrum kúgarar Haitímanna. Margar aðrar gamlar nýlendur halda fátækustu þjóðum heims í samskonar skuldaánauð og nú herja tvær þeirra á okkur. Ef við gefum undan, þá þýðir það að fleiri börn í Afríku halda áfram að deyja og átakið Make Poverty History sem Bono í U2 stírir (makepoverthistory.org) mun mistakast. Þá skulum við aldrei vera hræsnarar meir. Hver sá sem borgar hjálparstofnun kirkjunnar pening fyrir jól, eða þykist ætla að styrkja eitthvað barnaþorp út í heimi, en x-ar já við Icesaver, er hræsnari og nazisti, því afleiðingar gjörða hans eru skelfilegar fyrir þetta fólk og heildarmyndina hér í heiminum. Þetta skilja allir vitibornir og vellesnir menn, en til er gáfað fólk sem engu að síður getur blekkt sjálft sig og fegrað ástæður sínar, og þorir ekki að horfast í augu við eigin heigulshátt, hræsni og siðleysi. Það er sorglegt. Þú gerir mannkyninu, heiminum og þínum minnstu bræðrum meira gagn með að x-a NEI við Icesave heldur en með að gefa milljónir í hjálparstarf, og milljónir gætu aldrei bætt þann skaða sem þú gerir verr settum börnum en þínum eigin, sem þó munu líka bera byrgði synda þinna og borga fyrir þær, ef þú x-ar já...Horfstu í augu við þetta og taktu svo ákvörðun, góða eða vonda, sem ábyrg manneskja, en ekki sem barnalegur maður á flótta undan eigin ábyrgð, vitandi hversu alvarleg ákvörðun þetta er. "Ég er komin með leið á þessu máli" er ekki gild ástæða. Eigum við þá ekki bara að hætta að flytja fréttir af hörmungunum í Japan og fara bara að horfa á Friends. Til er "leti" sem er bara siðleysi, ómennska og viðbjóður í dulargerfi. Ekki gerast sekur um slíka synd í gerfi leti. Sýndu smá vitrænan og mannlegan metnað og vertu almennileg manneskja!

MEGI RÉTTLÆTIÐ SIGRA UM HEIM ALLAN! (IP-tala skráð) 17.3.2011 kl. 15:32

2 identicon

Heyr Heyr ! Flott pistill hjá þer! Hárrétt!!!

anna ragnhildur kvaran (IP-tala skráð) 17.3.2011 kl. 20:10

3 identicon

Sæll

Segðu mér var stjórnarandstaðan ekki með sinn fulltrúa í samninganefndinni eða var það miskilningur?

Ef að við segjum nei er þá málið bara dautt og við höldum áfram eins og ekkert hafi skeð ?

Þar sem þú ert nú meira innvígður en ég í þessi mál þá þætti mér vænt um að þú útskýrðir fyrir mér á mannamáli hvers vegna ég eigi að segja nei.

Þú nefnir ríkisábyrgð vegna bankanna og ég tel að ríkið eigi að falla frá allri ábyrgð á Arion banka og Íslandsbanka og selja sína hluti í þessum bönkum en eiga 100% í Landsbankanum.

Ég vil þess vegna skora á þig að flytja frumvarp þar sem kemur fram að ríkið (þ.e. þjóðin) hætti að ábyrgjast allar innistæður í þessum tveimur bönkum sem hvort sem er eru í eigu erlendra aðila.

Segðu mér með þessa kynningu gat stjórnarandstaðan ekki staðið fyrir henni eða er hún algörlega máttlaus í þessu sem öðru.

 kveðja

Viðar Magnússon 

Viðar Magnússon (IP-tala skráð) 18.3.2011 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband