Hverju svara ráðherrarnir?

Fréttablaðið, 16. nóv. 2010 06:00

Hverju svara ráðherrarnir?

Heilbrigðismál
Sigurður Ingi Jóhannsson
alþingismaður
Heilbrigðismál Sigurður Ingi Jóhannsson alþingismaður

Sigurður Ingi Jóhannsson
alþingismaður skrifar:

Niðurskurðarhugmyndir ríkisstjórnar VG og Samfylkingar á sjúkrasviðum heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni hafa magnað upp mikla reiði íbúa á landsbyggðinni. Þrátt fyrir að þensla síðasta áratugar hafi farið meira og minna framhjá flestum svæðum landsins (kannski sem betur fer) þá sitja allir landsmenn uppi með kreppuna og afleiðingar hennar.

Íbúar landsbyggðarinnar eru eins og aðrir tilbúnir til að bera sameiginlegar byrðar af samdrætti, skattahækkunum, launaskerðingum og niðurskurði í opinberum rekstri. En íbúar landsbyggðar sætta sig ekki við að fórnað sé grunnþjónustu við íbúa á heilbrigðissviði. Þar er höggvið of nærri öryggi fjölskyldunnar, barna og aldraðra. Það gilda heldur ekki jafnræðissjónarmið í niðurskurðartillögum fjármála- og heilbrigðisráðherra. Misrétti þegnanna blasir við hvort sem talað er um fjarlægðir, samgöngur eða kostnað.



Gríðarleg mótmæli

Um allt land hefur fólk mótmælt. Haldnir hafa verið afar velsóttir íbúafundir, undirskriftalistar hafa gengið manna á milli í einstökum héruðum sem margir hafa skrifað undir til að mótmæla aðförinni að heilbrigðisstofnun heimahéraðs. Á Suðurlandi skrifuðu þannig allt að tíu þúsund manns af 19 þúsund kosningabærra manna á svæðinu og mótmæltu þannig fyrirhuguðum niðurskurði. Á fimmtudaginn komu hundruð manna frá Suðurlandi og víðar af landinu saman á Austurvelli til svokallaðrar meðmælastöðu til að sýna hug sinn í verki. Annars vegar til að fylgja eftir afhendingu undirskriftalista tugþúsunda íbúa af öllu landinu og hinsvegar til að sýna samstöðu með því frábæra heilbrigðiskerfi sem við eigum og viljum eiga áfram. Skilaboðin eru skýr – íbúar landsbyggðarinnar vilja að allir landsmenn njóti grunn-heilbrigðisþjónustu óháð efnahag eða búsetu. Undir þetta hafa langflestir þingmenn tekið. Þingmenn úr öllum flokkum og jafnvel ráðherrar.



Ákall íbúa – aflýsið hættuástandi

Viðbrögð fjármálaráðherra og að hluta til heilbrigðisráðherra hafa hinsvegar valdið vonbrigðum. Þeir hafa hingað til komið sér hjá því að svara ákalli íbúa landsbyggðar. Svör þeirra eru óskýr, í besta falli verið loðmulla um að málin verði skoðuð að nýju en óvissu íbúa og starfsfólks hefur ekki verið eytt.
Krafan er einföld, lýsið því yfir að stefnan um að leggja af sjúkrahús landsbyggðar hafi verið röng og frá henni hafi verið fallið. Í kjölfarið er sjálfsagt að setja á fót samráðshóp til að fara yfir með hvaða hætti við náum enn betri árangri í heilbrigðisþjónustunni á sem hagkvæmastan hátt. Að því borði þarf að kalla fagfólk heilbrigðisþjónustunnar hvarvetna af landinu sem og fulltrúa íbúa. Grunnþarfir íbúa á hverju svæði þarf að skilgreina og kostnað þjónustunnar á hverjum stað áður en til sértæks niðurskurðar kemur.



Hvernig er þetta hægt

Til að skapa fjárhagslegt svigrúm fyrir þessari skynsömu leið í stað leiðar ríkisstjórnar VG og Samfylkingar þarf að gera þrennt. Í fyrsta lagi virðist þurfa (þar sem AGS ræður för ríkisstjórnar) að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um vægari niðurskurð við endurskoðun efnahagsáætlunarinnar. Í öðru lagi ættum við að skattleggja strax séreignasparnaðinn og nota hluta hans til að fara skynsamlegri leið í niðurskurði útgjalda til heilbrigðismála. Í þriðja lagi þurfum við að spýta vel í lófana í atvinnumálum. Þar eru næg tækifæri sem munu á undraskjótum tíma auka hagvöxt og skila þannig fleiri krónum í ríkiskassann.
Það er leið skynseminnar – án öfga vinstri eða hægri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband